Leita í fréttum mbl.is

Delas Hermitage Marquise de la Tourette 2000

Dimmur og dæmalaust góður Hermitage fyrir jólasteikina á viðráðanlegu verði. Þroskuð skógarber, bæði rauð og dökk, og plómur eða sveskjur, svartur pipar, kjöt og reykur. Ekkert lyng. Rauðu berin eru mest áberandi í byrjun og þá bregður líka fyrir beikon- og barbekjúkeim, svo færist dimman yfir, krækiber, brómber, blek. Heilsteypt. Bragðstyrkur í meðallagi, ávöxturinn ennþá nokkuð ferskur, tunnan á bakvið tjöldin, hér er enginn áberandi lakkrís, tjara eða vanilla. Þokkaleg sýra, mjúk tannínin á útleið, hæfileg sæta og beiskja og áfengismagnið bara 13% guðisélof en ekki hálfa leið uppí púrtvínsstyrk eins og tíðkast á sumum nýbýlunum. Meðalfylling, silkimjúkt, langt eftirbragð. Best borið fram í kaldara lagi beint úr nýupptekinni flösku, þolir ekki umhellingu eða að standa lengi í opinni flösku eða glasi, þá gufar elegansinn upp. Hellið bara varlega því vínið er ósíað og töluvert botnfall í flöskunni. Stóð sig vel með andabringu og ætti að henta vel fyrir alla villibráð. Dýrt en samt góð kaup, enginn vínáhugamaður getur látið Hermitage ósmakkað, þessi er ósvikinn, kostar 4.690,- kr í Ríkinu.  

Rauðvín, Frakkland, Rónardalur, Hermitage-svæði


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Steinar Þór Guðlaugsson

Um bloggið

Vín í Ríki og Fríhöfn

Umsagnir um vín sem fást í Ríkinu

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband