Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2007

Delas Hermitage Marquise de la Tourette 2000

Dimmur og dćmalaust góđur Hermitage fyrir jólasteikina á viđráđanlegu verđi. Ţroskuđ skógarber, bćđi rauđ og dökk, og plómur eđa sveskjur, svartur pipar, kjöt og reykur. Ekkert lyng. Rauđu berin eru mest áberandi í byrjun og ţá bregđur líka fyrir beikon- og barbekjúkeim, svo fćrist dimman yfir, krćkiber, brómber, blek. Heilsteypt. Bragđstyrkur í međallagi, ávöxturinn ennţá nokkuđ ferskur, tunnan á bakviđ tjöldin, hér er enginn áberandi lakkrís, tjara eđa vanilla. Ţokkaleg sýra, mjúk tannínin á útleiđ, hćfileg sćta og beiskja og áfengismagniđ bara 13% guđisélof en ekki hálfa leiđ uppí púrtvínsstyrk eins og tíđkast á sumum nýbýlunum. Međalfylling, silkimjúkt, langt eftirbragđ. Best boriđ fram í kaldara lagi beint úr nýupptekinni flösku, ţolir ekki umhellingu eđa ađ standa lengi í opinni flösku eđa glasi, ţá gufar elegansinn upp. Helliđ bara varlega ţví víniđ er ósíađ og töluvert botnfall í flöskunni. Stóđ sig vel međ andabringu og ćtti ađ henta vel fyrir alla villibráđ. Dýrt en samt góđ kaup, enginn vínáhugamađur getur látiđ Hermitage ósmakkađ, ţessi er ósvikinn, kostar 4.690,- kr í Ríkinu.  

Rauđvín, Frakkland, Rónardalur, Hermitage-svćđi


Höfundur

Steinar Þór Guðlaugsson

Um bloggiđ

Vín í Ríki og Fríhöfn

Umsagnir um vín sem fást í Ríkinu

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband